Stjörnur tvær um vetrarnótt
Sem blika skært
Í húminu
Samt leynist margt sem erfitt er að sjá
Allt er hvítt og dimmt en samt svo bjart
Kyrrt og hljótt í stofunni heima
Tæri greniilmurinn
Kertin loga, blíð og skær
Þau minna á liðna tíð
Það góða sem býr í hverri sál
Hjálpsemi í desember
Hlýjar mér inn að hjarta
Kærleikur til náungans
Nærir og yljar
Nærvera í faðmi þér
Lyftir mér upp og verndar
Ó, þú og ég um jólin
Það er mín eina hugarró þessi jól
Hvíld þú hér í faðmi mínum
Finndu hugarró
Hvert á land sem farir þú brott
Þá veistu að hér er ég
Hugsa til þín
Sendi þér stjörnur tvær
Bið þær vaki yfir þér
Hugarró um jólin
Hjálpsemi í desember
Hlýjar mér inn að hjarta
Kærleikur til náungans
Nærir og yljar
Nærvera í faðmi þér
Lyftir mér upp og verndar
Ó, þú og ég um jólin
Það er mín eina hugarró þessi jól