[ Featuring Brunalidid ]
Yfir fannhvíta jörð leggur frið
Þegar fellur mjúk logndrífa á grund
Eins og heimurinn hinkri aðeins við
Haldi niðri sér anda um stund
Eftirvæntingu í augum má sjá,
Allt er einhvað svo spennandi í dag
Jafnvel kisa hún tiplar á tá,
Þorir tæplega að mala sitt lag
Svo berst ómur
Og samhljómur
Til eyrna af indælum söng
Tvíræð bros mætast
Og börnin kætast
En biðin er börnunum löng
Loksins kveikt er á kertum í bæ
Þá er kátt um öll mannana ból
Og frá afskekktum bæ út við sæ
Ómar kveðjan um Gleðileg jól