Ó manstu enn árin
Er indæl gleði bjó
Í okkar ungu hjörtum
Og aldrei burtu fló
Er vetrar byljir buldu
Við byggðum hús úr snjó
Ó manstu er við öll
Okkar þorpi frá
Skutumst út á skauta
Hve skemmtilegt var þá
Tjörnin undir ísi
Eins og spegilgljá
Ó, manstu kyrrlát kvöld
Er komið sumar var
Og allir léku yfir
Og engum leiddist
Þar nú geymast mér í minni
Myndir bernskunar
Ó manstu allt sem að
Ungan kætti hug
Er ímyndunaraflið
Ákaft þreytti flug
Þeim ævintýraheimi
Ég aldrei gleymi
Ó manstu allt sem að
Ungan kætti hug
Er ímyndunaraflið
Ákaft þreytti flug
Nú geymast mér í minni myndir bernskunar