Sigur Ros - Ágætis byrjun Lyrics
Copyright: Lyrics © Original Writer and Publisher
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Svefn-g-englar
(Ég) er kominn aftur (á ný)
Inn í þig
(Það er) svo gott að vera (hér)
En stoppa stutt við
Ég flýt um í neðarsjávar hýði
(á hóteli)
Beintengdur við rafmagnstöfluna
(og nærist)
Tjú, tjú
Tjú, tjú
En biðin gerir mig (leiðan)
Brot (hættan) sparka frá mér (og kall á)
Ég verð að fara (hjálp)
Tjú, tjú, tjú
Tjú, tjú, tjú
Tjú, tjú, tjú, tjú, tjú
Ég spring út og friðurinn í loft upp
(Baðaður nýju ljósi
Ég græt og ég græt, aftengdur)
Ónýttur heili settur á brjóst og mataður af svefn
Svefn-g-englum
Tjú, tjú, tjú
Tjú, tjú, tjú
Tjú
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Starálfur
Blá Nótt Yfir Himininn
Blá Nótt Yfir Mér
Horf-Inn Út Um Gluggann
Minn Með Hendur
Faldar Undir Kinn
Hugsum Daginn Minn
Í Dag Og Í Gær
Blá Náttfötin Klæða Mig Í
Beint Upp Í Rúm
Breiði Mjúku Sængina
Loka Augunum
Ég Fel Hausinn Minn Undir Sæng
Starir Á Mig Lítill Álfur
Hleypur Að Mér En Hreyfist Ekki
Úr Stað Sjálfur
Starálfur
Opna Augun
Stírurnar Úr
Teygi Mig Og Tel (Hvort Ég Sé Ekki)
Kominn Aftur Og Alltalltílæ
Samt Vantar Eitthvað
Eins Og Alla Vegginna
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Flugufrelsarinn
Hamagangur, Ég Þusti Niður Að Læknum, Bjargvættur.
Ég Gerði Skip Tilbúið Og Fór Með Litla Bæn Því Ég Var Hræddur.
Sólin Skein Og Lækurinn Seytlaði.
Sóley - Sóley Flugurnar Drepast.
En Í Dag Á Ég Að Bjarga Sem Flestum Flugum.
Með Spotta Í Skip Ég Er Með Í Hvorri Hendi - Ákveðinn.
Ég Kasta Þeim Út Í Hylinn Og Reyni Að Hala Flugurnar Inn Áður En Seiðin Ná Til Þar Sem Þær Berjast Við Strauminn Og Vatnið.
Þannig Líður Dagurinn.
Sjálfur Kominn Um Borð, Var Farinn Að Berjast Við Bæjarlækinn Sem Hafði Þegar Deytt Svo Margar.
Ég Næ Ekki Andanum Og Þyngist Við Hverja Öldu.
Mér Vantar Kraftaverk Því Ég Er Að Drukkna Syndir.
Ég Reyni Að Komast Um Borð. Ég Dreg Í Land Og Bjarga Því Sjálfum Mér Aftur Á Bakkann.
Á Heitan Stein Ég Legg Mig Og Læt Mig Þorna Aftur.
Ég Kasta Mér Út Í Hylinn Og Reyni Að Hala Flugurnar Inn Áður En Seiðin Ná Til Þeirra Þar Sem Þær Berjast Við Strauminn Og Vatnið.
Gustur, Allur Ennblautur.
Frakkur Finnur Hvernig Báturinn Er Kominn Úr Mesta Straumnum Og Landið Smám Saman Nálgaðist.
Hann Bæði Um Borð Í Sjó Og Landi Bjargandi Flugunum Sem Farast Hér.
Þó Sér Í Lagi Sjálfum Sér.
Eilíft Stríð Og Hvergi Friður.
En Það Verður Einhver Að Fórna Sér.
Dagarnir Eru Langir
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Ný Batterí
Heftur Með Gaddavír Í Kjaftinum Sem Blæðir Mig
Læstur Er Lokaður Inn Í Búri
Dýr Nakinn Ber Á Mig
Og Bankar Upp Á Frelsari
Ótaminn Setur Í Ný Batterí
Og Hleður Á Ný (X4)
Við Tætum Tryllt Af Stað
Út Í Óvissuna
Þar Til Að Við Rústum Öllu Og Reisum Aftur
Aftur Á Ný (X3)
Aftur Á Bak Þar Sem Við Ríðum
Aftur Með Gaddavír
Í Kjaftinum Sem Rífur Upp Gamalt Gróið Sár
Er Orðinn Ryðguð Sál
Rafmagnið Búið
Mig Langar Að Skera
Og Rista Sjálfan Mig Á Hol
En Þori Það Ekki
Frekar Slekk Ég Á Mér
Aleinn Á Ný
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Hjartað hamast (bamm bamm bamm)
Hjartað hamast
Eins og alltaf
En nú úr takt við tímann
Týndur og gleymdur heima hjá mér
Alveg að springa (í gegnum nefið)
Sný upp á sveitta (sængina)
Stari a ryðið (sem vex á mér)
Étur sig inní (skelina)
Stend upp mig svimar
(það molnar af mér)
Ég fer um á fotum
(Geng fram hjá mér)
Klæði mig nakinn
(Og fer svo úr)
Vakinn en sofinn
(Sef ekki dúr)
Tala upphátt, og ferðast inni í mér, leita
Ég leita af lífi, um stund ég stóð í stað
Með von að vin, ég vinn upp smá tima
Leita að agætis byrjun
En verð að von brigðum
Hjartað stoppar (Hreyfist ekki)
Kem gangráð fyrir (Sem ég kíngi og fel)
Finn startkapal (Og kveiki í mér)
Sé allt tvöfallt (Tvöfallt svart)
Kerfisbilun (Heilinn neitar)
Held áfram að leita
Óstjórnandi (Upplýsingar)
þarf aftur að mata (Mata mig)
Tala upphátt, og ferðast inni í mér, leita
Ég leita af lífi, um stund ég stóð í stað
Með von að vin, ég vinn upp smá tima
Leita að agætis byrjun
En verð að von brigðum
Writer: JON THOR BIRGISSON, DP, AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Viðrar Vel Til Loftárása
Ég Læt Mig Líða Áfram
Í Gegnum Hausinn
(Hugsa) Hálfa Leið
Afturábak
Sé Sjálfan Mig Syngja Sem
Fagnaðarerindið Við Sömdum Saman tyooo...
Við Áttum Okkur Draum
Áttum Allt
Við Riðum Heimsendi
Við Riðum Leitandi
Klifruðum Skýjakljúfa
Sem Síðar Sprungu Upp
Friðurinn Úti
Ég Lek Jafnvægi
Ég Dett Niður
Ég Læt Mig Líða Áfram
Í Gegnum Hausinn
Ég Kem Alltaf Niður Aftur Á Sama Stað
Alger Þögn
Ekkert Svar
(En) Það Besta Sem Guð Hefur Skapað
Er Nýr Dagur
Writer: JON THOR BIRGISSON, AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Olsen Olsen
Dua tiga kucing berlari,
mana nak sama si kucing belang,
dua tiga boleh kucari,
mana nak sama si adik seorang.
sorong papan tarik papan,
buah keranji atas perahu,
suruh makan dia makan,
suruh mengaji dia tak mahu.
buah cempedak di luar pagar,
ambil galah tolong jolokkan,
saya budak baru belajar,
kalau salah tolong tunjukkan
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Ágætis Byrjun
Bjartar vonir rætast
Er við göngum bæinn
Brosum og hlæjum glaðir
Vinátta og þreyta mætast
Höldum upp á daginn
Og fögnum tveggja ára bið
Fjarlægur draumur fæðist
Borðum og drekkum saddir
Og borgum fyrir okkur
Með því sem við eigum í dag
Setjumst niður spenntir
Hlustum á sjálfa okkur slá
Í takt við tónlistina
Það virðist engin hlusta
Þetta er allt öðruvísi
Við lifðum í öðrum heimi
Þar sem við vorum aldrei ósýnileg
Nokkrum dögum síðar
Við tölum saman á ný
En hljóðið var ekki gott
Við vorum sammála um það
Sammála um flesta hluti
Við munum gera betur næst
Þetta er ágætis byrjun
Writer: AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, JON THOR BIRGISSON, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)
Writer: JON THOR BIRGISSON, AGUST AEVAR GUNNARSSON, GEORG HOLM, KJARTAN SVEINSSON
Copyright: Lyrics © Universal Music Publishing Group
![LyricFind](/images/LF_logo.gif)